Pálmatré ehf er stofnað af Pálma Pálssyni og er í eigu hans og eiginkonu hans Hildigunnar Skúladóttur.

Sjálfstæð starfsemi hófst vorið 1998 og í kjölfarið var fyrirtækið stofnað. Því hefur byggst upp mikil reynsla og þekking í verklegum framkvæmdum í gegnum tíðina og fyrirtækið þróast og þroskast með.

Við höfum starfað á almennum útboðsmarkaði og byggt meðal annars skólabyggingar, íþróttamannvirki, meðferðarheimili og tekið að okkur viðhalds og breytingaverkefni. Ásamt þessu sinnt eigin verkefnum í íbúðaframleiðslu í einbýlishúsum, raðhúsum og fjölbýlishúsum. Bændum og búaliði höfum við haft sérstaklega gaman af að sinna og byggt á bæjum fjósbyggingar, hænsnahús, svínahús, vélaskemmur og reiðhöll, ýmist uppsteypt hús, stálgrindarhús eða límtréshús.

Fyrirtækið er búið öflugum hópi starfsmanna sem býr yfir víðtækri reynslu á sviði bygginga og mannvirkja og bera því uppi hróður fyrirtækisins.

Á síðustu árum hafa kröfur aukist um innra gæðaeftirlit til að bæta skilvirkni fyrirtækja á vinnu og vöru. Pálmatré hefur sinnt innra gæðaeftirliti um árabil sem hefur þróast samhliða vexti fyrirtækisins.

Gæðamálin eru í sífeldri endurskoðun hjá okkur en helsta markmiðið er að skila vandaðri vöru, stunda heiðarleg viðskipti og tryggja þannig ánægju viðskiptavina okkar.

Almenn umsókn

Um að gera að senda okkur nokkur orð um þig á palmatre@palmatre.is og við höfum samband.

Taktu næsta skrefið og vinnum saman!